Megan Rapinoe byrjar óvænt á varamannabekknum hjá heimsmeisturum Bandaríkjanna í leiknum gegn Englendingum í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en flautað verður til leiks í Lyon klukkan 19.
Rapinoe skoraði bæði mörk Bandaríkjanna í 2:1 sigrinum gegn gestgjöfum Frakka í átta liða úrslitunum um síðustu helgi og er hún markahæst ásamt fleiri á mótinu með fimm mörk. Christen Press tekur sæti Rapinoe í byrjunarliðinu.
Phil Neville landsliðsþjálfari Englendinga gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 3:0 sigrinum gegn Norðmönnum. Carly Telford kemur í markið í stað Karen Bardsley sem á við meiðsli að stríða. Þá koma inn í liðið þær Rachel Daly og Beth Mead í stað þeirra Fran Kirby og Toni Duggan.