Íslendingaliðið Start tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik umspilsins um sæti í efstu deild Noregs í fótbolta.
Start vann 1:0-sigur á KFUM Ósló á heimavelli í dag og mætir liðinu sem endar í 14. sæti úrvalsdeildarinnar í tveimur úrslitaleikjum um sæti í deild þeirra bestu.
Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Start og var tekinn af velli í uppbótartíma. Jóhannes Harðarson er þjálfari liðsins.
Start hafnaði í þriðja sæti norsku B-deildarinnar á leiktíðinni og skoraði Aron 13 mörk í 30 leikjum og var á meðal bestu leikmanna liðsins.
Lokaumferð úrvalsdeildarinnar fer fram í dag og er baráttan á botninum einstaklega spennandi. Sex lið koma til greina sem andstæðingar Start í úrslitum umspilsins.