Stórkostlega ljótt mark Kanada í nótt (myndskeið)

Atiba Hutchinson (nr. 13) fagnar marki með Kanada.
Atiba Hutchinson (nr. 13) fagnar marki með Kanada. AFP

Karlalið Kanada í knattspyrnu er á góðri leið með að tryggja sér sæti á HM 2022 eftir að hafa unnið góðan 2:0-útisigur á El Salvador í nótt. Fyrra mark liðsins í leiknum var ansi skrautlegt.

Cyle Larin komst þá upp hægri kantinn af harðfylgi boltann á hægri kanti, kom boltanum fyrir þaðan sem hann fór af varnarmanni El Salvador, Eriq Zavaleta, og í stöngina.

Þaðan barst boltinn aftur í Zavaleta og þaðan fór hann í höfuðið á Atiba Hutchinson, miðjumanni Kanada, sem lá í grasinu. Einhvern veginn sveiflaðist boltinn af höfði Hutchinson og þaðan í netið úr afskaplega þröngu færi.

Sjón er sem oftast sögu ríkari og má sjá þetta skondna mark hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka