Albert Guðmundsson er ekki í landsliðshópi Arnars Þórs Viðarssonar fyrir komandi verkefni gegn Bosníu og Hersegóvínu og Liechtenstein en mikil umræða hefur skapast í kringum það.
Meðal þeirra sem blönduðu sér í umræðuna var Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður og faðir Alberts, en hann gagnrýndi svör Arnars við því hvers vegna Albert væri ekki í hópnum.
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi aðstoðarmaður Arnars með landsliðinu blandaði sér í umræðuna á twitter-síðu sinni í kvöld.
Tveir synir Eiðs, þeir Sveinn Aron og Andri Lucas hafa báðir verið viðloðandi landsliðið í undanförnum verkefnum en einungis Andri er í hópnum nú. Eiður grínaðist með það og virtist með kaldhæðnina að vopni vera að skjóta á pistil Guðmundar.
„Stoppum aðeins!!! Er bara einn af mínum drengjum í A-landsliði karla í fótbolta??!! Hvaða andsk rugl. Bara smá pabbarant en allavega er uppáhalds barnið mitt þarna. Ég allavega mæti ekki nema að ég byrji inná…..“
Stoppum aðeins!!!
— Eidur Gudjohnsen (@Eidur22Official) March 17, 2023
Er bara einn af mínum drengjum í A-landsliði karla í fótbolta??!!
Hvaða andsk rugl🤬🤬
Bara smá pabbarant en allavega er uppáhalds barnið mitt þarna😂 Ég allavega mæti ekki nema að ég byrji inná…..