Messi allt í öllu

Lionel Messi fagnar eftir að hann skoraði fyrsta mark leiksins.
Lionel Messi fagnar eftir að hann skoraði fyrsta mark leiksins. AFP/Christophe Simon

París SG hafði betur gegn Nice, 2:0, í frönsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Gátu meistararnir því fagnað aftur, eftir tvö röp í röð þar á undan.

Lionel Messi kom Parísarliðinu yfir á 26. mínútu og hann lagði upp seinna markið á Sergio Ramos á 76. mínútu og þar við sat.

PSG er í toppsætinu með 69 stig, sex stigum á undan Lens í öðru sæti, þegar liðin eiga átta leiki eftir.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert