Í liði umferðar og sendi skýr skilaboð

Orri Steinn Óskarsson er orðinn annar tveggja markahæstu leikmanna FCK …
Orri Steinn Óskarsson er orðinn annar tveggja markahæstu leikmanna FCK á tímabilinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsframherjinn ungi í knattspyrnu, er í úrvalsliði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni hjá Tipsbladet.

Það kemur ekki á óvart, Orri var bjargvættur FC Köbenhavn á sunnudaginn þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði öll þrjú mörk liðsins í mikilvægum sigri á AGF á Parken, 3:2.

Í umsögn Tipsbladet segir: „Auðvitað er pláss fyrir þrennuhetjuna í liði umferðarinnar. Orri Óskarsson rotaði AGF með þremur mörkum í síðari hálfleik og nú er kannski komið að því að þessi gríðarlega efnilegi Íslendingur hirði endanlega hina eftirsóttu framherjastöðu hjá FC Köbenhavn. Hann er í það minnsta búinn að senda Jacob Neestrup skýr skilaboð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert