Svisslendingurinn Roger Federer vann tiltölulega auðveldan sigur á Spánverjanum Tommy Robredo, 6:3, 7:7 og 7:5, í fjórðungsúrslitum opna ástralska meistraramótsins í tennis í dag. Með þessu setti Federer met en þetta er í 11. skipti í röð, sem hann kemst í undanúrslit í svonefndum risamótum.
Federer mætir Bandaríkjamanninum Andy Roddick í undanúrslitum. Þeir hafa mæst 13 sinnum á mótum og hefur Federer 12 sinnum farið með sigur af hólmi.