Skíðamóti Íslands, sem halda átti um næstu mánaðamót á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins, hefur verið frestað um 2 vikur og verður haldið í Hlíðarfjalli dagana 12.–15. apríl. Skíðafélag Akureyrar hefur tekið við mótshaldinu úr höndum Skíðaráðs Reykjavíkur.