Pétur Eyþórsson varð hlutskarpastur í Íslandsglímunni í dag og ber saæmdarheitið glímukóngur Íslands 2007. Pétur hlaut að launum Grettisbeltið en þetta er í þriðja sinn sem hann vinnur Íslandsglímuna. Svana Hrönn Jóhannsdóttir varð glímudrottning og hlaut Freyjumenið en Svana vann titilinn einnig í fyrra.