Ingvar Þór Jóhannesson gerði jafntefli við Sigurð Daða Sigfússon í 6. umferð meistaraflokks Kaupþingsmótsins í skák, sem fram fór í kvöld. Ingvar er annar í flokknum með 5 vinninga. Snorri G. Bergsson sigraði franska alþjóðlega meistarann Charles Lamoureux og er í þriðja sæti.
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir gerði jafntefli við Izabelle Lamoureux í kvennaflokki sem hófst í dag en þar tefla fjórar konur.
Lettneski stórmeistarinn Normund Miezis er efstur í stórmeistaraflokki með 5,5 vinning. Annar er litháíski stórmeistarinn Aloyas Kveynis með 4,5 vinning. Enski stórmeistarinn Robert Bellin er efstur í meistaraflokki með 5,5 vinning. Í kvennaflokki er Elsa María Þorfinnsdóttir efst en hún sigraði Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur.
Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 10. Teflt er í skákhöllinni við Faxafen.