Jón Viktor Gunnarsson blandaði sér í toppbaráttuna á minningarmótinu um Þráin Guðmundsson með góðum sigri í skákinni í dag. Hann sigraði indversku skákkonuna Subbaraman Vijayalaskshmi sem er alþjóðlegur meistari rétt eins og Jón. Á meðan gerði Héðinn jafntefli gegn Rússneska stórmeistaranum Ivanov. Normunds Miezes er enn efstur en í 2-4 sæti ásamt Jóni og Héðni Steingrímssyni er skoski stórmeistarinn John Shaw.
Þeir eiga því báðir tækifæri að ná stórmeistaraáfanga og eru í 2-4 sæti í mótinu eins og er, en þeir tefla saman í umferð morgundagsins. Jón Viktor verður með hvítt.