Brenton og Helena valin bestu leikmenn efstu deilda í körfubolta

Brenton Birmingham, sem leikur með liði Njarðvíkur, var valinn besti leikmaður Iceland Express deildar karla í körfubolta og Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka var valinn besti leikmaður kvennadeildarinnar á lokahófi Körfuknattleikssambands Íslands í gærkvöldi.

Fjölmargar viðurkenningar voru veittar í lokahófinu, m.a. var besti dómarinn valinn Sigmundur Már Herbertsson, Njarðvík.

Í liði ársins í Iceland Express deild kvenna eru eftirtaldir leikmenn:

Hildur Sigurðardóttir, UMFG
Helena Sverrisdóttir, Haukum
Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík.

Í liði ársins í Iceland Express deild karla eru:

Brenton Birmingham, UMFN
Páll Axel Vilbergsson, UMFG
Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli
Hlynur Bæringsson, Snæfelli
Friðrik Stefánsson, UMFN.

Heimasíða KKÍ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert