San Antonio Spurs lagði Phoenix Suns, 111:106, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildar bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar í nótt. Leikurinn fór fram í Phoenix. Tim Duncan skoraði 33 stig og hirti 16 fráköst fyrir San Antonio og Tony Parker bætti 32 við. Steve Nash skoraði 31 stig fyrir Phoenix hitti ekki úr þýðingarmiklu skoti á lokamínútu leiksins vegna þess að hann var með blæðandi sár á nefinu eftir að hafa lent í samstuði við Parker.