Fimm stuðningsmenn rúmenska meistaraliðsins Dinamo Búkarest enduðu á sjúkrahúsi eftir óeirðir sem urðu í aðdraganda leiks liðsins við Lazio í kvöld. Þetta var fyrri viðureign liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, og endaði hún með 1:1 jafntefli, en seinni leikur liðanna verður í Rúmeníu eftir tvær vikur.