Anand heldur forustunni

Indverski skákmaðurinn Viswanatahn Anand heldur forustunni á heimsmeistaramótinu í skák en hann gerði jafntefli við Ísraelsmanninn Boris Gelfand í 8. umferð í kvöld. Anand er með 5,5 vinninga en Gelfand er með 5 vinninga.

Rússinn Vladímír Kramnik gerði jafntefli við landa sinn Peter Svidler og er í 3. sæti með 4,5 vinninga.

Frídagur er á morgun en níunda umferð verður tefld á sunnudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert