Ragna Ingólfsdóttir leikur til úrslita í einliðaleik kvenna á alþjóðlega badmintonmótinu á morgun eftir sigur á Kati Tolmoff frá Eistlandi í undaúrslitum í kvöld, 21:14. Ragna mætir Trine Niemeier frá Danmörku í úrslitunum en hún hafði betur gegn Tinnu Helgadóttur, 21:10 og 21:8.
Í tvíliðaleik kvenna verður íslenskur úrslitaleikur en þær Ragna og Katrín Atladóttir lögðu mótherja sína frá Danmörku, 21:12 og 21:8 og Sara Jónsdóttir og Tinna Helgadóttir höfðu betur í undanúrslitunum gegn dönskum mótherjum sínum, 21:13 og 21:19. Í tvíliðaleik karla töpuðu Tryggvi Nielsen og Magnús Ingi Helgason fyrir Dönunum Peter Hasbak og Jonas Jensen, 21:19 og 21:13.