Dagný varð næst síðust

Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri.
Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri. Brynjar Gauti

Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona frá Akureyri, hafnaði í 49. sæti í risasvigi í heimsbikarkeppninni í St. Moritz í Sviss sem var að ljúka. Alls hófu 60 skíðakonur keppni í morgun en níu heltust úr lestinni.

 
Á fyrsta millitíma var Dagný 49 / 100 úr sekúndu á eftir sigurvegaranum Anju Person, frá Svíþjóð , á öðrum millitíma var hún 2,45 sek á eftir. Dagný fékk tíman 1.18.45 og var 3,39 sek á eftir Person.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert