Bandaríska frjálsíþróttakonan Marion Jones var í dag dæmd í hálfs árs fangelsi fyrir að afvegaleiða rannsóknarmenn bandarísku alríkislögreglunnar og segja ósatt um lyfjaneyslu sína í tengslum við íþróttaiðkun. Jones fékk einnig tveggja ára skilorð og á að gegna samfélagsþjónustu í 800 klukkustundir.
Jones bað dómarann um að vera eins miskunnsaman og mögulegt væri enda ætti hún tvö börn sem hún vildi helst ekki fara frá, jafnvel þó um stuttan tíma væri að ræða. Dómarinn var hins vegar á öðru máli og kvað upp dóm sinn og þá brotnaði Jones saman og grét á öxl eiginmanns síns.
Hin 31 árs gamla Jones þarf að mæta í fangelsið 11. mars til að hefja afplánun sína. Dómarinn sagði að dómnum væri ætlað að senda öðrum íþróttamönnum skýr skilaboð um hvers þeir megi vænta ef þeir notuðu ólögleg lyf til að auka getu sína á íþróttavellinum.
Alþjóða frjálsíþróttasambandið hefur áður úrskurðað Jones í 2 ára keppnisbann og Alþjóða ólympíunefndin hefur strikað út árangur hennar á ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 þar sem hún vann til fimm verðlauna.
Jones þrætti lengi fyrir að hafa tekið óleyfileg lyf en á síðasta ári brustu varnir hennar loks þegar ljóst var, að sannanir gegn henni voru orðnar yfirgnæfandi og hún átti yfir höfði sér þungan dóm fyrir að hindra frangang réttvísinnar.
Jones viðurkenndi að hafa tekið steralyfið THG, sem framleitt var af lyfjafyrirtækinu Bay Area Laboratory Cooperative (BALCO) og nefnt var „the clear", en það greindist ekki í venjulegum lyfjaprófum á þessum tíma.
Margir kunnir íþróttamenn voru bendlaðir við svonefnt BALCO lyfjahneyksli þegar í ljós kom hvers eðlis starfsemi fyrirtækisins var. Margir þeirra komu fyrir rannsóknarkviðdóm, þar á meðal Jones. Fimm íþróttamenn voru fundnir sekir um lyfjanotkun, þar á meðal Tim Montgomery, barnsfaðir og fyrrum sambýlismaður Jones en hann var sviptur heimsmeti í 100 metra hlaupi vegna málsins.
Jones hélt því fram, að Trevor Graham, fyrrum þjálfari hennar, hafi fyrst gefið henni steralyfið THG og sagt henni að það væri repjufræjaolía. Graham kom BALCO-málinu raunar af stað með því að senda sýnishorn af THG til lyfjaeftirlitsmanna. Þeir létu rannsaka sýnið og sáu að um var að ræða áður óþekkt steralyf.
Jones sagði að þegar útsendarar lögreglunnar spurðu hana hvort hún hefði notað lyfið og sýndu henni hvernig það leit út hefði hún fyllst skelfingu og neitað þótt hún hefði þekkt vöruna. Það varðar allt að 5 ára fangelsi og 250 þúsund dala sekt að segja alríkislögreglumanni ósatt.
Jones féll á lyfjaprófi á síðasta ári eftir að þvagsýni sem tekið var á bandaríska meistaramótinu reyndist innihalda svonefnt EPO. Annað sýni, sem tekið var, reyndist hins vegar hreint og því var málið látið niður falla.
Jones var á sínum tíma einn fyrsti milljónamæringurinn í röðum kvenfrjálsíþróttamanna. Hún fékk jafnan á milli 70-80 þúsund dali, jafnvirði 4,5-5 milljóna króna, fyrir að mæta á frjálsíþróttamót og að minnsta kosti 1 milljón dala fyrir auglýsingasamninga. Jones býr nú í Austin í Texas og giftist nýlega frjálsíþróttamanninum Obadele Thompson. Í skjölum, sem hún lagði fyrir rétt á síðasta ári, segist hún vera nánast eignalaus.