Jelena Isinbayeva frá Rússlandi setti í kvöld enn eitt heimsmetið í stangarstökki. Isinbayeva vippaði sér yfir 4,95 metra á innanhússmóti í Donetsk í Úkraínu og bætti eigið heimsmet um 2 sentímetra en hún setti met á sama stað í fyrra. Landa hennar, Julya Golubchikova varð önnur með 4,72 metra og í þriðja sæti hafnaði Monica Pyrek frá Póllandi en hún stökk 4,67 metra.