Ísland burstaði Suður-Afríku

mynd/ihi.is

Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí burstaði lið Suður-Afríku í 4. deild HM sem fram fer í Rúmeníu. Lokatölur urðu 9:1 fyrir Ísland og hefur liðið nú sigrað í fyrstu þremur leikjum sínum í mótinu.

Flosrún Vaka Jóhannesdóttir og Birna Baldursdóttir gerðu 2 mörk hvor og þær Anna Ágústsdóttir, Sigrún Árnadóttir, Hanna Heimisdóttir, Sólveig Smáradóttir og Steinunn Sigurgeirsdóttir skoruðu sitt markið hver.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert