Franski hjólreiðamaðurinn Cyril Dessel varð fljótastur á 16. dagleið Frakklandshjólreiðanna í dag, 157 km leið milli Cuneo á Ítalíu og Jausiers í Frakklandi.
Franck Schleck frá Lúxemborg heldur forustunni í hlaupinu og gulu treyjunni. Hann er sjö sekúndum á undan Austurríkismanninum Bernhard Kohl.