Björn Jörundur Friðbjörnsson úr hljómsveitinni Nýdönsk vann sigur í 14. umferð Reykjavíkurmótsins í siglingum í kvöld þegar hann stýrði skútunni Aquarius í mark þremur mínútum á undan næstu skútu.
Björn Jörundur og félagar náðu strax forystu í kvöld sem þeir létu aldrei af hendi en í öðru sæti varð skútan XB.