Mikið hneyksli hefur komið upp í heimi japönsku súmóglímunnar en tveir rússneskir glímumenn hafa orðið uppvísir að því að reykja maríjúana.
Ýmislegt hefur gengið á utan glímuhringsins í Japan á undanförnum misserum. Á síðasta ári var stjórnandi þjálfunarmiðstöðvar handtekinn, grunaður um árás á ungan glímumann, sem íhugaði að hætta glímuiðjun. Ungi maðurinn lést af sárum sínum.