Sonja synti vel en komst ekki í úrslit

Sonja að loknu sundinu í nótt.
Sonja að loknu sundinu í nótt. mbl.is/Jón Björn

Sonja Sigurðardóttir reið í dag á vaðið á Ólympíumóti fatlaðra í Peking þegar hún keppti í 50 metra baksundi í Vatnsteningnum víðfræga. Sonja kom í mark á 57,90 sekúndum sem er hennar besti tími í tæp tvö ár.

Sonja hafnaði í 10. sæti í undanrásum af 14 keppendum og það dugði því ekki til þess að ná inn í úrslitin.

Tvö heimsmet voru slegin í lauginni í dag og komu þau í síðustu tveimur sundunum áður en Sonja hóf sína keppni.Laugin, keppendur sem og áhorfendur voru því í góðum gír og það nýtti Sonja sér vel og synti á 57,90 sekúndum og var um tveimur sekúndum frá því að komast í úrslitin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert