Vandræðagemsinn Gascoigne

Stjarnan fyrrverandi er alvarlega veikur andlega og líkamlega.
Stjarnan fyrrverandi er alvarlega veikur andlega og líkamlega. Reuters

Lítið virðist hagur Paul Gascoigne vænkast en hann var enn eina ferðina handtekinn í morgun fyrir óspektir sem helguðust af því að barinn sem hann sækir hvað stífast var ekki búinn að opna klukkan níu í morgun.

Hefur knattspyrnustjarnan fyrrverandi þrívegis á árinu verið handtekinn vegna óláta og færður að lokum á geðsjúkrahús en hann þykir afar tæpur á geði á köflum og er óttast almennt um heilsu hans andlega og líkamlega. Hefur hann oftar en einu sinni reynt sjálfsvíg

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert