Það má segja að KR-ingar hafi fagnað bikarsigrum sínum alla helgina því á laugardaginn varð KR bikarmeistari í knattspyrnu karla og á sunnudaginn urðu KR-ingar Poweradebikarmeistarar í körfuknattleik karla.
Fjallað er um báða þessa leiki í máli og myndum í Morgunblaðinu í dag og þar kemur meðal annars í ljós að úrslitaleikurinn í körfubolta í gær var jafn skemmtilegur og leikur KR og Fjölnis var leiðinlegur.
Bjarni Fel er stuðningsmaður KR og hann prísar sig sælan að ekki kom til framlengingar á laugardaginn. „Hún hefði alveg farið með mig,“ segir Bjarni.
Það er meira í Mogganum í dag.