Guðmundur E. Stephensen vann báða sína leiki þegar lið hans, Yport, sigraði Montpellier, 4:0, í frönsku deildarkeppninni í borðtennis í gærkvöld.
Í fyrri leik sínum hafði Guðmundur betur gegn Þjóðverjaunum Lennart Wehkling, 3:0 (11:4, 11:6, 11:9) og í seinni leiknum bar Íslandsmeistarinn sigurorð af Mailhe, 3:0 (11:2, 12:10, 11:8).