Tíu tilnefndir í kjöri á íþróttamanni ársins

Margrét Lára Viðarsdóttir varð fyrir valinu í fyrra.
Margrét Lára Viðarsdóttir varð fyrir valinu í fyrra. mbl.is

Íþróttamaður ársins 2008 verður útnefndur í hófi á Grand hóteli Reykjavík föstudaginn 2. janúar. Þetta verður í 53. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna, SÍ, standa að kjörinu frá stofnun þeirra árið 1956. Atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna hafa verið talin og liggur ljóst fyrir hvaða tíu íþróttamenn urðu í efstu sætum í kjörinu.

Nöfn þeirra í stafrófsröð eru þessi:

Alexander Petersson, handknattleiksmaður hjá Flensburg í Þýskalandi.

Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá Barcelona á Spáni

Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi

Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður hjá Portsmouth á Englandi

Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá KR

Katrín Jónsdóttir, knattspyrnukona hjá Val

Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona hjá Val

Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður hjá Ciudad Real á Spáni

Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleiksmaður hjá GOG í Danmörku

Þormóður Jónsson, júdómaður úr JR.

Sex þessara íþróttamanna voru á lista tíu efstu í kjörinu á síðasta ári – Eiður Smári, Guðjón Valur, Jón Arnór, Margrét Lára, Ólafur og Snorri Steinn.

Margrét Lára var útnefnd íþróttamaður ársins í fyrra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert