Hafsteinn Ægir Geirsson og Pétur Þór Ragnarsson urðu langfyrstir í hjólreiðakeppninni á milli Reykjavík og Akureyrar. Tólf lið lögðu af stað úr borginni klukkan sjö í morgun og þeir Hafsteinn og Pétur renndu inn í höfuðstað Norðurlands laust fyrir klukkan sjö í kvöld. Þeir skiptust á um að hjóla.
Tveir voru í hverju liði og hjóluðu til skiptis. Meðalhraði sigurvegaranna var hvorki meira né minna en 39 km á klukkustund sem mun vera álíka hraði og í venjulegri tveggja klukkustunda keppni. Þeir sögðu að ótrúlega vel hefði gengið, aðstæður verið frábærir; sól, hiti og lítill mótvindur. Albert Jakobsson er liðsstjóri sigurvegaranna og bílstjóri.
Í öðru sæti urðu Hákon Hrafn Sigurðsson og Valgarður Sæmundsson og ökumaður þeim með Sigurður A. Hákonarson, og í þriðja sæti urðu bræðurnir Anton Örn Elfarsson og Rúnar Karl Elfarsson. Ökumaður með þeim var Davíð Þór Sigurðsson.
Þessi lengsta hjólreiðakeppni ársins er á vegum Ungmennafélags Íslands; kynningargrein á Landsmótinu sem hefst á Akureyri á morgun og haldin til að minnast þess að hundrað ár eru liðin frá fyrsta Landsmótinu, sem var á Akureyri árið 1909.