Konur sem hlupu maraþon á Landsmóti á Akureyri í júlí hafa fengið bréf um að þær verði hækkaðar um eitt sæti. Þær sem hlutu silfur og brons verða skráðar í 1. og 2. sæti hér eftir.
Deilur urðu í sumar um réttmæti þess að veita Ólöfu Lilju Sigurðardóttur gullverðlaun en hún örmagnaðist þegar örstutt var eftir og var studd yfir endalínuna. Málinu var skotið til Frjálsíþróttasambands Íslands sem vísaði til alþjóðlegrar lagagreinar um að aðstoð yfir endalínu væri óheimil.