Færeyska landsliðið í knattspyrnu stökk upp um 41 sæti á styrkleikalista FIFA yfir landslið heimsins. Liðið er nú í 122 sæti með 218 stig. Ekkert annað landslið tók jafn stórt stökk upp listann síðast þegar hann var uppfærður.
Góður árangur Færeyinga í landsleikjum undanfarið skýra stökkið. Íslenska landsliðið er í 87. sæti FIFA-listans með 372 stig.