Pálmi Guðlaugsson setti Íslandsmet í 100 m skriðsundi í flokki S6 á Evrópumóti fatlaðra í sundi í Laugardalslaug í morgun er hann synti á 1.24,54 mínútur. Þar með bætti hann sitt eigið Íslandsmet sem var 1.24,72 mín. en það met setti hann í febrúar á þessu ári.
Þrátt fyrir Íslandsmetið komst Pálmi ekki í úrslit.