Norðurlandamót ungmenna í frjálsíþróttum fer fram á frjálsíþróttavelli Akureyrar á næsta ári. UMSE og UFA munu sjá um rekstur og framkvæmd mótsins sem fram fer 28.-29. ágúst. Um 270 keppendur tóku þátt á mótinu sem fram fór í Vasaa í Finnlandi fyrr á þessu ári en búist er við um 250 erlendum gestum á mótið.
Norðurlandamót ungmenna fór fram síðast á Íslandi árið 2000 í Borgarnesi. Frá þeim tíma hefur reglum mótsins verið breytt og getur það aðeins farið fram á völlum sem eru með 8 hlaupabrautum.
Hingað til hafa Íslendingar keppt með landsliði Danmerkur á mótinu en það er til endurskoðunar. Keppendur á U20 verða fleiri en á Landsmóti UMFÍ í sumar - þar kepptu 256 í öllum aldurflokkum.