Davíð Þór Viðarsson fyrirliði Íslandsmeistara FH í knattspyrnu og handboltakonan Hanna G. Stefánsdóttir úr Haukum voru í kvöld útnefnd íþróttamenn Hafnarfjarðar fyrir árið 2009. Þá var karlalið Hauka í handknattleik valið lið ársins.
Í fréttatilkynningu frá íþróttaráði Hafnarfjarðar segir;
,,Davíð Þór varð m.a. Íslands- og Deildameistari 2009 með Meistaraflokki FH í knattspyrnu þar sem hann var fyrirliði. Einnig hefur hann verið A landsliðsmaður Íslands síðastliðið keppnistímabil. Hann tók þátt í Evrópukeppni félagsliða á tímabilinu með FH. Davíð Þór er einn besti knattspyrnumaður landsins og mikil og góð fyrirmynd ungra íþróttamanna.
Hanna Guðrún varð m.a. Deildarmeistari 2009 með M.fl. Hauka í handknattleik kvenna þar sem hún var fyrirliði. Hanna var valin besti leikmaður íslandsmótsins í vor og var jafnframt langmarkahæst. Einnig var hún lykilleikmaður í kvennalandsliðinu. Hanna Guðrún er með árangri sínum og framgöngu mjög góð fyrirmynd ungra íþróttakvenna. “