Montreal er enn á lífi í NHL

Það er farið að hitna í kolunum í rimmu Montreal …
Það er farið að hitna í kolunum í rimmu Montreal og Pittsburgh. Reuters

The Montreal Canadiens halda áfram að koma á óvart í úrslitakeppni bandarísku NHL deildarinnar í íshokkí. Montreal hefur nú jafnað metin gegn ríkjandi meisturum Pittsburgh Penguins 2:2 í undanúrslitum deildarinnar.

Montreal sigraði í fjórða leik liðanna í nótt þar sem Pittsburgh komst í 2:1 en Montreal tryggði sér sigur með tveimur mörkum í síðasta leikhlutanum. Næsti leikur fer fram í Pittsburgh á morgun.

Montreal sló Washington Capitals út í síðustu umferð 4:3 eftir að hafa lent 1:3 undir í rimmunni. Washington hafnaði í efsta sæti Austurdeildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert