Óðinn Björn yfir 19 metra

Óðinn Björn Þorsteinsson
Óðinn Björn Þorsteinsson Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Óðinn Björn Þorsteinsson, kúluvarpari úr FH, varpaði kúlunni 19,04 metra á öðru Coca Cola-móti Frjálsíþróttadeildar FH í Kaplakrika í gær. Hann var aðeins 20 sentímetrum frá sínu besta í kúluvarpi utanhúss.

Annar varð Steinn Orri Erlendsson úr Breiðabliki með 12,74 metra.

Óðinn Björn náði lengst kastinu í þriðju umferð. Hann varpaði 17,94 metra í fyrstu umferð, þá 18,02 í þeirri annarri, 18,24 í fjórðu umferð og 18.20 í fimmtu umferð keppninnar sem fram fór í blíðskapar veðri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert