Rússarnir Aleksander Shustov og Ivan Ukhov börðust um sigurinn í hástökki karla á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í kvöld. Shustov hafði betur en hann var sá eini sem fór yfir 2.33 metra. Ukhov fór yfir 2.31 metra. Þriðji varð Bretinn Martyn Bernard með 2.29 metra. Svíinn Linus Thörnblad stökk varð fjórði með 2.29 metra en hann þurfti fleiri tilraunir til þess að komast yfir þá hæð.