„Ég fæ bara reikninginn í hausinn“

Jakob Jóhann Sveinsson.
Jakob Jóhann Sveinsson. mbl.is/Brynjar Gauti

„Ég hafði ekki einu sinni efni á því að fara á þetta Evrópumeistaramót. Ég fæ bara reikninginn í hausinn einhvern tíma í haust,“ segir Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi, sem tekur þátt á Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer í Ungverjalandi.

Jakob er á meðal bestu sundmanna Evrópu í 100 og 200 metra bringusundi en hann ætlar að taka ákvörðun um framhaldið hjá sér í haust – en Jakob hefur skuldsett sig til þess að reyna að koma sér í fremstu röð.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað tekur við hjá mér þegar ég kem heim eftir EM. Það hefur verið erfitt fyrir mig að standa í þessu og vita það að peningarnir eru ekki til staðar. Ég var langt niðri í maí og hafði miklar áhyggjur af fjármálunum en eftir að hafa rætt við íþróttasálfræðing ákvað ég bara að gleyma þessu öllu saman þar til eftir EM.,“ sagði Jakob Jóhann Sveinsson.

Viðtalið við Jakob má lesa í heild sinni má lesa í fjögura síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert