Ragna Ingólfsdóttir er komin í átta manna úrslitin í einliðaleik kvenna á opna írska mótinu í badminton en hún sigraði Beatriz Corrales frá Spáni í þremur lotum í kvöld.
Ragna vann fyrstu lotu örugglega, 21:10, en tapaði annarri lotu, 15:21. Ragna rétti sinn hlut á ný og vann sannfærandi sigur í úrslitalotunni, 21:12.
Hún heldur áfram keppni á morgun og mætir þá Susan Egelstaff frá Skotlandi í átta manna úrslitum. Sú skoska er metin annar besti keppandinn á mótinu en Ragna sú áttunda besta.