Higgins heimsmeistari í snóker

John Higgins.
John Higgins.

Skotinn John Higgins varð í kvöld heimsmeistari í snóker í fjórða skipti en hann lagði Englendinginn Judd Trump, 18:15, í úrslitaviðureign í Sheffield í kvöld.

Það hafa skipst á skin og skúrir hjá Higgins undanfarin misseri en fyrir ári var hann úrskurðaður í keppnisbann vegna ásakana um að hann hefði hagrætt úrslitum. Keppnisbannið var síðan fellt úr gildi. Þá missti hann föður sinn í febrúar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert