Bretinn Mark Cavendish var fljótastur á sjöundu dagleið Frakklandshjólreiðanna í dag. Norðmaðurinn Thor Hushovd heldur forustunni í keppninni. Raunar er mjótt á mununum því Hushovd hefur 1 sekúndu forskot á Ástralann Cadel Evans.
Hörð keppni var um sigur á dagleiðinni, sem var 218 km vegalengd frá La Mans til Chateauroux. Cavendish varð naumlega á undan Ítalanum Alessandro
Petacchi, Þjóðverjanum Andre Greipel og Frakkanum Romain Feillu.