Flaug á gaddavírsgirðingu

Hoogerland leit ekki vel út þegar hann reyndi að losa …
Hoogerland leit ekki vel út þegar hann reyndi að losa sig af girðingunni. Reuters

Hollendingurinn Johnny Hoogerland reif sig illa á gaddavír þegar upptökubíll franska sjónvarpsins ók á hann í Frakklandshjólreiðakeppninni í dag. Hann kastaðist af bílnum á gaddavírsgirðingu og reif sig á læri. Lítið var eftir af buxunum.

Hoogerland var ekki einn um að lenda á bílnum því Spánverjinn Juan Antonio Flecha lenti líka í árekstri við bílinn.

Þeir félagar voru í fimm manna hópi hjólreiðamanna sem leiddu keppnina. Þeir höfðu hjólað 167 km af 205 km dagleið þegar óhappið átt sér stað.

Skipuleggendur keppninnar voru öskureiðir yfir óhappinu og bönnuðu stjórnendum bílsins að koma nálægt keppninni meir.

Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert