Kári og Berglind komu fyrst í mark

Frá Vestmannaeyjahlaupinu.
Frá Vestmannaeyjahlaupinu. mbl.is/Eyjafréttir

Vestmannaeyjahlaupið var haldið í fyrsta sinn í gær.  Í hlaupinu var boðið upp á þrjár vegalengdir, 5, 10 og 21 km, en hlaupið fór fram við frábærar aðstæður í dag, í sólskini og sannkallaðri haustblíðu. 

Þátttakendur voru um 250 talsins en það kom fáum á óvart þegar Kári Steinn Karlsson langhlaupari kom fyrstur í mark í 21 km hlaupinu á tímanum 1:12.  Berglind Þóra Steinarsdóttir kom fyrst kvenna í mark á tímanum 1:44.

Í 10 km hlaupinu var Þórólfur Ingi Þórsson fyrstur en heimamenn á svæðinu voru fljótir að hafa uppi á tengslum hans við Vestmannaeyjar.  Þeir þurftu þó ekki að hafa fyrir því að finna Eyjatenginguna í kvennaflokki því þar sigraði heimakonan Gyða Arnórsdóttir. Í 5 km hlaupinu sigraði svo Hinrik Stefánsson og Sigrún Edwald kom fyrst í mark í kvennaflokki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert