Agnes Suto komst í kvöld í úrslit í stökki á heimsbikarmóti í fimleikum sem nú stendur yfir í Maribor í Slóveníu en þar eru hún og Thelma Rut Hermannsdóttir á meðal keppenda.
Agnes náði áttunda sæti í stökkinu og varð síðust inní úrslitin með 12,587 stig en Thelma Rut kom næst á eftir henni í 9. sætinu með 12,512 stig.
Agnes varð í 12. sæti og Thelma í 18. sæti á tvíslá, Thelma varð í 11. sæti og Agnes í 12. sæti á slá, og í gólfæfingum varð Agnes í 12. sæti og Thelma í 14. sæti.