ÍR í 20. sætinu á Spáni

Sveit ÍR sem keppti á Spáni.
Sveit ÍR sem keppti á Spáni.

Sveit ÍR hafnaði í 20. sæti í Evrópukeppni félagsliða í víðavangshlaupi, af 21 þátttökuliði, en keppnin fór fram í Valencia á Spáni í gær.

Þorbergur Ingi Jónsson hljóp hina 9,8 km leið á 30:48 mín og varð í 61. sæti, Tómas Zoëga varð í 98. sæti á 32:56 mín, Arnar Pétursson var næstur á eftir Tómasi á 33:04 mín og Reynir Bjarni Egilsson varð númer 105 í mark á 33:46 mín.

Svo þétt komu keppendur í mark að ef Þorbergur hefði hlaupið 15 sek hraðar hefði hann orðið í 45. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert