Anton Sveinn: Engin vonbrigði að jafna metið

Anton Sveinn Mckee sundmaður úr Ægi jafnaði 11 ára gamalt Íslandsmet Arnar Arnarsonar, SH, í 400 m skriðsundi á Íslandsmeistaramótinu í 50 m laug í Laugardalshöll síðdegis í dag. Hann synti á 3.56,91 mínútur og sagði eftir sundið að það væru sér engin vonbrigði hafa ekki slegið metið.

Anton Sveinn segir sína aðalgrein vera 1.500 m skriðsund en hann hefur tekið miklum framförum í þeirri greina síðasta ári en vantar enn 18 sekúndur upp á að ná tilskyldum árangri. Anton Sveinn segir það alls ekki vera fjarlægan draum. Mikill tími sé en til stefnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert