Lokatilraun hjá Helgu Margréti að ná ÓL-lágmarki

Helga Margrét Þorsteinsdóttir.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir. mbl.is/Golli

Frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir mun um helgina gera lokatilraun til að ná lágmarki fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í London eftir tæpar þrjár vikur.

Helga Margrét tekur þátt í franska meistaramótinu í fjölþrautum sem fram fer í Aubagne. Helga keppir í sjöþraut. Hennar besti árangur er 5.878 stig en ólympíulágmarkið er 5.950 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert