Sigurður: Hvert stig skiptir máli

Sigurður Sveinn Sigurðsson, skoraði eina mark leiksins þegar SA Víkingar sigruðu Björninn á Íslandsmótinu í íshokkí í Egilshöllinni í dag. 

„Það var mjög sterkt að halda þetta út því leikurinn var spennandi á lokamínútunum en við vörðumst vel,“ sagði Sigurður meðal annars þegar mbl.is ræddi við hann að leiknum loknum.

Sigurður minntist á að Ómar Skúlason, markvörður SA, meiddist á ökkla lokamínútu leiksins og óvíst er hversu alvarleg hans meiðsli eru.

Sigurður Sveinn Sigurðsson.
Sigurður Sveinn Sigurðsson. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert