Orri skorar frá eigin endalínu (myndskeið)

Varnarmaðurinn Orri Blöndal innsiglaði 6:3 sigur Íslands á Spáni í A-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í íshokkí í Zagreb í dag með skemmtilegu marki. 

Undir lok leiksins tóku Spánverjar markvörð sinn út af í stöðunni 5:3 og freistuðu þess að setja aukinn þunga í sóknina. Orri fékk pökkinn til móts við sitt eigið mark og sendi hann yfir allan ísinn og í autt mark Spánverja en Orri átti auk þess stoðsendingu í leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert