Í dag hefur staðið yfir vinna við að leggja dúk yfir grasið á Laugardalsvelli. Stór blásari er við enda vallarins sem mun blása heitu lofti undir dúkinn og halda þannig hita á vellinum svo að hann verði eins og best verður á kosið þegar flautað verður til leiks í leiknum mikilvæga við Króata.
Fjölmiðlum gafst ekki tækifæri til að mynda uppsetninguna nema úr stúku vallarins til þess að koma í veg fyrir að fulltrúar breska fyrirtækisins sem á dúkinn yrðu fyrir ónæði en að sögn KSÍ var mikill áhugi fjölmiðla á uppsetningunni.